Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17679
Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á vægi framlags Íslands til jafnréttismála á alþjóðavettvangi. Einnig er leitast við að leiða fyrir sjónir alþjóðlega ímynd Íslands í málaflokknum. Hlutfallslega sterk staða kvenna í íslensku samfélagi hefur gert það að verkum að málaflokkurinn er vel til þess fallinn að skapa Íslandi ákveðna sérstöðu á alþjóðavettvangi. Markmið þessarar rannsóknar er meðal annars að svipta hulunni af þeirri sérstöðu. Fræðilegi grunnur ritgerðarinnar byggir á femínískum kenningum ásamt kenningum um smáríki og alþjóðleg viðmið. Tekin voru viðtöl við fimm fulltrúa Íslands á alþjóðavettvangi með það að markmiði að leiða í ljós skynjun þeirra á alþjóðlegri stöðu Íslands í jafnréttismálunum. Þá var orðræðugreiningu beitt við úrvinnslu gagna sem aflað var í viðtölunum.
Meginniðurstaða rannsóknarinnar er að ímynd Íslands í jafnréttismálum á alþjóðavettvangi sé afar sterk. Hún er að einhverju leyti samofin ímynd Norðurlandanna sem ræðst af norrænni samfélagsgerð og sterku velferðarkerfi. Framlag Íslands til jafnréttismála á alþjóðavísu er fólgið í innlendu frumkvöðlastarfi í málaflokknum. Í krafti jákvæðrar ímyndar og reynslu, hefur Íslandi tekist að öðlast trúverðuga rödd á alþjóðavettvangi sem fulltrúar þess nýta meðal annars til þess að beita sér fyrir valdeflingu kvenna, kynjasamþættingar og mannréttindum kvenna um allan heim.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Áslaug Karen_MA-ritgerð_með forsíðu.pdf | 804.53 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |