Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17691
Ritgerð þessi er unnin sem samanburðarrannsókn á danskri og íslenskri listasögu (á tímabilinu 1980-1985) og er takmörkuð við þá kynslóð myndlistarmanna er kom fram í sviðsljós listheimsins á árabilinu 1976-1985 í sama mund og „nýja málverkið“. Leitað verður svara við því hvort sjá megi sameiginleg einkenni í málverki á Íslandi og í Danmörku á tímabilinu og þá hvers vegna þau eru til staðar. Danir og Íslendingar áttu það sameiginlegt að hafa litið til sömu landsvæða í leit að námi og upplifun sem hluta af mótunarferli sínu sem listamanna, s.s. til Hollands, Þýskalands, Frakklands og Bandaríkjanna. Titill ritgerðarinnar er tilvísun í orð dönsku myndlistarkonunnar Dorte Dahlin sem fram komu í viðtali við Henrik S. Holck árið 1982 í dagblaðinu Information. Að mati ritgerðarhöfundar eru þessi orð Dorte Dahlin lýsandi fyrir hið nýja málverk og tíðarandann á Íslandi og í Danmörku á árunum 1980-1985.
Rannsóknin byggist á spurningunni: Væri mögulegt að leggja „nýja málverkið“ á Íslandi og „de unge vilde“ – „det nye vilde maleri“ – í Danmörku að jöfnu í samanburðarlistasögurannsókn?
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
hrn_maritgerd_280414_FINAL.pdf | 13.26 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |