is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1771

Titill: 
  • Vá, þetta er eins og hafmeyja: birtingarmynd listsköpunar í leik- og grunnskóla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessa verkefnis er að skoða myndsköpun elstu barna leikskóla og yngstu barna grunnskóla. Rannsóknarspurningin sem lögð var til grundvallar:
    Er munur á myndsköpunartímum á elsta stigi leikskóla og myndmenntatímum á yngsta stigi grunnskóla? Ef svo er: Í hverju liggur sá munur og hvernig birtist hann?
    Í ritgerðinni er fjallað um hugmyndafræði Malaguzzi, Dewey, Lowenfeld og Britten og framsetningu þeirra á kenningum tengdum þroska barna og mikilvægi myndsköpunar í þeim þroska. Greint er frá mikilvægi myndlistarkennslu og þeim aðferðum sem Elliot Eisner leggur til grundvallar. Þar sem í verkefninu er bæði komið inn á leik- og grunnskóla er farið yfir mikilvægi þess að börn upplifi grunnskólann sem eðlilegt framhald af leikskólanum. Fjallað er um aðalnámskrár og skólanámskrár beggja skólastiganna. Til þess að skoða hvernig kennarar beggja skólastiganna nýta listsköpun í starfi sínu, fá fram sýn þeirra á mikilvægi hennar til þroska barna og tengingu við fræðin og kenningarnar sem liggja þar að baki var gerð könnun á elsta stigi leikskóla og yngsta stigi grunnskóla. Þátttökuathuganir voru gerðar í hvorum hópi fyrir sig og viðtöl tekin við tvo kennara sem komu að kennslu barnanna þar sem kannanirnar fóru fram. Í lokin er greint frá helstu niðurstöðum verkefnisins: kemur fram að töluverður munur er á listsköpun barna í þeim skólum sem hér eiga í hlut. Í leikskólanum virðist áhersla lögð á listsköpun og að börnin fái notið sín í þeim verkefnum sem lögð eru fyrir þau en listsköpun í grunnskólanum virðist ekki vera gefið jafn mikið vægi. Börnum þar eru takmarkanir settar í sköpun sinni en leikskólabörnin fá meira frelsi til sköpunar út frá þeim ramma sem þeim er settur. Umhverfi og aðstæður leikskólans eru annars konar en í grunnskólanum og virðist umgjörð kennslunnar í leikskólanum henta betur til myndsköpunarkennslu en í grunnskólanum

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 24.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1771


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hafmeyja_heild.pdf452.33 kBLokaðurVá, þetta er eins og hafmeyja-heildPDF
Hafmeyja_efnisyfirlit.pdf37.43 kBOpinnVá, þetta er eins og hafmeyja-efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Hafmeyja_heimildir.pdf22.26 kBOpinnVá, þetta er eins og hafmeyja-heimildaskráPDFSkoða/Opna
Hafmeyja_utdrattur.pdf74.84 kBOpinnVá, þetta er eins og hafmeyja-útdrátturPDFSkoða/Opna