Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1774
Í lokaverkefni þessu verður fjallað um forsendur til lesturs, greint verður frá lestrarferlinu frá upphafi náms til læsis og nokkrar aðferðir til lestrarkennslu skoðaðar. Aðferðin LTG, eða lestur á talmálsgrunni verður skoðuð ítarlega og kennsluáætlun gerð eftir henni. Einnig verður fjallað um rannsókn sem höfundur ritgerðarinnar framkvæmdi í leikskólum á Akureyri. Tilgangurinn með þessari rannsókn var að skoða hvaða áherslur væru helstar á undirbúningi fyrir grunnskólanám í leikskólunum á Akureyri. Langaði rannsakanda að kanna hvort og hvernig starfsfólk leikskólanna undirbýr nemendur sína fyrir lestrarnám í grunnskóla og fyrir hvaða nemendur undirbúningurinn er. Einnig var spurt um samstarf við grunnskólana, hvernig því væri háttað og hvort það samstarf miðaði að undirbúningi fyrir elsta árgang leikskólanna og/eða einnig fyrir aðra. Að lokum var spurt um viðhorf þátttakenda til undirbúnings leikskólabarna fyrir grunnskólanám, hver þeir telji að eigi að sjá um það og hvaða skoðun þátttakendur hafa á því hvort aðalnámskrá leikskóla eigi að kveða nánar á um skipulagða lestrarkennslu fyrir elstu nemendur sína.
Af niðurstöðum rannsóknarinnar má sjá að um sjötíu prósent af leikskólum bæjarins leggja upp úr því að auðvelda nemendum sínum skiptin milli leik- og grunnskóla. Starfsfólk leikskólanna virðist almennt leggja mikið upp úr því að skipulegga hópastarf á eldri deildunum með skólaundirbúning í huga þar sem börnin fá tækifæri til að kynnast grunnskólabörnum, heimsækja og skoða vistarverur grunnskólanna og aðlagast tilhugsuninni um skólaskiptin. í langflestum leikskólum er þátt tóku í rannsókninni var stuðlað að lestri á fjölbreyttan og markvissan hátt og víða metnaðarfullt lestrarstarf í gangi. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu líka í ljós að leikskólakennararnir sem tóku þátt í rannsókninni eru almennt á þeirri skoðun að undirbúningur barna fyrir grunnskólanám eigi að vera samstarf skólanna og foreldra. Flestir þeirra eru þó á móti því að setja eigi ákvæði um formlegan lestrarundirbúning fyrir elstu börn leikskólanna inn í aðalnámskrá.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lestur_e.pdf | 59.29 kB | Opinn | Lestur - forsendur, þróun og kennsluaðferðir-efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
lestur_u.pdf | 39.53 kB | Opinn | Lestur - forsendur, þróun og kennsluaðferðir-útdráttur | Skoða/Opna | |
lestur_h.pdf | 101.32 kB | Opinn | Lestur - forsendur, þróun og kennsluaðferðir-heimildaskrá | Skoða/Opna | |
lestur.pdf | 631.77 kB | Lokaður | Lestur - forsendur, þróun og kennsluaðferðir-heild |