Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17759
Viðfangsefni þessarar ritgerðar eru trúarbragðaskipti Íslendinga og forsendur þeirra. Forsendur trúarbragðaskipta Íslendinga voru rannsakaðar og greindar með hliðsjón af trúarbragðaskiptum annarra germanskra þjóða. Því var fjallað um trúarbragðaskipti germanskra þjóða í Vestur- Evrópu og einkum Noregi sem Ísland tengdist mest á þessum tíma. Stuðst var við forn- og miðaldaheimildir eins og kostur var.
Rannsóknin leiddi í ljós að helsta forsenda trúarbragðaskipta Íslendinga hafi verið vaxandi tengsl þeirra við kristnar þjóðir sem grundvölluðust af aukinni útbreiðslu kristninnar og kristinnar menningar á Norðurlöndunum. Íslendingar höfðu þá orðið fyrir kristnum menningaráhrifum í langan tíma sem lögðu grunninn að trúarbragðaskiptum þeirra. Ef ekki hefði gætt þessara menningaráhrifa hefðu trúarbragðaskiptin ekki gengið jafn greiðlega fyrir sig og raun bar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Trúarbragðaskipti Íslendinga Þórður Ólafur.pdf | 664.3 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |