is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17761

Titill: 
  • Gjafsókn í íslenskum rétti
  • Titill er á ensku Legal aid in Iceland
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar er að fjalla um gjafsókn á Íslandi og skoða hvort íslenska ríkið uppfyllir þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem hvíla á ríkinu í þeim efnum. Umfjöllunin byggir á því hvað felst í þeim réttindum sem 6. gr. MSE og 70. gr. stjskr. hafa að geyma og hvernig gjafsóknarúrræðið stuðlar að virkni þeirra réttinda. Þá verða ákvæði um gjafsókn í XX. kafla eml. rakin og skilyrði þeirra ákvæða skoðuð með tilliti til mannréttinda umsækjanda til aðgangs að dómstólum. Þar að auki verður litið til löggjafar um gjafsókn á Norðurlöndunum í samanburði við Íslenska löggjöf. Þá verður farið yfir málsmeðferð gjafsóknarmála hjá gjafsóknarnefnd og hvaða reglur gilda um hana.
    Í ljósi þess að sjaldan hefur verið reynt á ágreining um gjafsókn fyrir dómstólum á Íslandi byggir ritgerð þessi að mestu leyti á athugun dóma Mannréttindadómstóls Evrópu og álitum umboðsmanns Alþingis.
    Í 2 kafla verður farið yfir þjóðréttarlegar skuldbindingar íslenska ríkisins varðandi aðgang að dómstólum og gjafsókn.
    Í kafla 3 verður farið yfir lagaákvæði um gjafsókn í íslenskum rétti, skilyrði gjafsóknar ásamt heimildum til að takmarka gjafsókn.
    Í kafla 4 verður farið yfir framkvæmd gjafsóknar á Íslandi, stöðu gjafsóknarnefndar sem álitsgjafa og hvaða reglur gilda um málsmeðferð gjafsóknar.
    Í kafla 5 verður farið yfir hvernig löggjafinn hefur veitt framkvæmdavaldinu vald til ákvarðanatöku um gjafsókn og hvernig hlutverk dómstóla spilar þar inn í.

Samþykkt: 
  • 5.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17761


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Meistararitgerð í lögfræði.pdf719.51 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna