is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17802

Titill: 
  • Hamskipti. Hlutverk tísku í mótun borgar og sjálfsmyndar þjóðar á árunum 2000-2014
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni ritgerðarinnar er skilningur okkar á tísku og þróun Reykjavíkur sem tískuborgar. Tíska er heillandi viðfangsefni en jafnframt flókið, m.a. vegna þeirra linnulausu hamskipta sem einkenna náttúru hennar. Meginmarkmið þessa lokaverkefnis er að skoða hlutverk og stöðu tísku í Reykjavík á nýrri öld og rannsóknarspurningin felur í sér afstöðu til þess hvort að Reykjavík sé tískuborg. Fjallað verður um hefðbundnar tískuborgir og tilurð nýrra en grundvallarþáttur í myndun nýrrar tískuborgar er að hún skapi sér sérstöðu sem tengist staðnum á merkingarbæran hátt til aðgreiningar frá öðrum borgum. Þessi einkenni eru óefnisleg og þurfa að kalla fram huglæg tengsl við staðinn og minna á uppruna hans. Af þessu leiðir þörfin fyrir endurskilgreiningu íslenskra þjóðareinkenna og mótun nýrrar sjálfsvitundar. Í þessu samhengi verður leitast við að nota hugtak sem kalla má íslenskið og sótt er til hugmyndafræði Rolands Barthes og kannað hvort þjóðleg einkenni eða íslenskan samnefnara sé að finna í íslenskri tískuhönnun. Sérstaka umfjöllun fær fatahönnuðurinn Steinunn Sigurðardóttir og fatnaður hennar greindur með íslenskið í huga en Steinunn segist fyrst og fremst innblásin af íslenskri náttúru og hefð. Íslenskið var í upphafi rætt af Æsu Sigurjónsdóttur listfræðingi í skrifum hennar um tísku og myndlist í tengslum við þjóðlega sjálfsvitund og þróun þjóðlegra sérkenna. Kenningar mannfræðingsins Homi K. Bhabha um menningarlega samsömun og myndun þjóðernislegra orðræðuhátta verða ræddar í samhengi við íslenskið og fjallað um hvernig þjóðir sækja sér sameiginlegar minningar í fortíðina og endurreisa á þeim nýjar hefðir í nútíð. Í riti sínu Travelling Concepts in the Humanities heldur menningarfræðingurinn Mieke Bal því fram að hefðir geti ýtt undir hópamyndun og sjálfsvitund sem getur verið tvíráð þegar hún er byggð á (innra/ytra) tvíundarkerfi, einkum þegar hún er upphafin af ráðandi hópum í samfélaginu. Marie Riegels Melchior tískusagnfræðingur hefur fjallað um sambandið á milli tísku og þjóðernisvitundar. Hún leggur áherslu á tísku í félagslegu, pólitísku og efnahagslegu samhengi og mikilvægi einkenna sem móta þjóðlega sjálfsvitund. Ritgerðin er framlag til rannsókna á íslenskri tísku og skerfur í að setja saman brotakennda mynd af umsvifum sjálfstætt starfandi tískuhönnuða í Reykjavík. Ekki er hægt að segja að Reykjavík gegni stöðu tískuborgar en blómleg grasrót og framganga íslenskrar tískuhönnunar bera vott um að hún hafi alla burði til þess.

Samþykkt: 
  • 6.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17802


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
TIL ÆSU.pdf695.33 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna