is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1781

Titill: 
  • Þær „vefa í dúk og bönd draumanna rós og reyni“ : handavinnu kennsla stúlkna á Norðurlandi : Húsmæðraskóla Þingeyinga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B. Ed.-Prófs við Kennaradeild
    Háskólans á Akureyri vorið 2008. Því er ætlað að varpa ljósi á stöðu
    handavinnukennslu í barnaskólum á Norðurlandi fyrstu þrjá áratugi tuttugustu aldar,
    skýra stöðu handavinnu sem skyldunámsgreinar og athuga námsmöguleika stúlkna í
    handavinnu að loknum barnaskóla á þessu tímabili. Því næst er sérmenntun
    kvennaskoðuð og hugmyndafræðin að baki henni og helstu talsmenn kynntir. Þá er
    barátta þingeyskra kvenna fyrir húsmæðraskóla rakin og að lokum er fjallað um
    Húsmæðraskóla Þingeyinga á Laugum og greint frá handavinnukennslu þar eins og
    heimildir leyfa.
    Niðurstöður verkefnisins sýna að á Norðurlandi virðist handavinnukennsla hafa
    verið stunduð nær eingöngu í barnaskólum í bæjum á fyrstu þremur áratugum
    tuttugustu aldar. Möguleikar stúlkna til framhaldsnáms í handavinnu voru litlir,
    sérmenntun kvenna helgaðist af hlutverki konunnar sem móður og húsmóður og svo
    nefnd þjóðernisleg húsmæðrastefna lá að baki stofnun húsmæðraskólanna. Þingeyskar
    konur börðust yfir tuttugu ár fyrir slíkum skóla og árið 1929 var Húsmæðraskóli
    Þingeyinga stofnaður á Laugum í Reykjadal. Þar var mikið og gott skólastarf og
    fjölbreytt handavinnukennsla. Eftir 1970 fór nemendum stöðugt fækkandi og var
    skólinn lagður niður 1986 vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu.

Samþykkt: 
  • 24.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1781


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Álfheiður_-Loka loka loka.pdf7.35 MBOpinnHeildPDFSkoða/Opna