is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17885

Titill: 
  • „Ég gerði þetta ekki.“ Um samtímalist, þátttöku og söfn
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Það eru þrjár megin spurningar sem leitað er svara við í þessari ritgerð. Í fyrsta lagi hvernig tengist ný safnafræði breytingum innan listheimsins á síðustu áratugum? Í öðru lagi hvernig endurspeglast lýðræðisumræða og –væðing síðustu áratuga í safnastarfi og samtímalist? Og í þriðja og síðasta lagi hver er munurinn á þeim möguleikum sem söfn annars vegar og listamenn hins vegar hafa til framsetningar ögrandi nálgunar innan veggja safna?
    Nálgunin byggir meðal annars á endurliti höfundar á eigin reynslu sem fyrrverandi starfsmaður Listasafns Reykjavíkur. Skurðpunktinn sem verður milli starfsemi safns og framsetningar listar þegar listamenn takast á við safnið sem stofnun verður skoðaður. Hvort sem myndlistarmenn eru að takast á við rýmislega innviði stofnunar, safnkostinn, fræðslustarfsemina eða skapa svið eða vettvang fyrir starfsemi sem alla jafna fer ekki fram í söfnum.
    Megin niðurstaðan er sú að tengsl nýrrar safnafræði og samtímalistar virðast byggja á stöðugri víxlverkun þar sem listin sækir innblástur til safna og öfugt þó nálgunin eigi oft uppruna sinn í gagnrýni myndlistarmanna á safnið sem stofnun. Safnið er tilraunastöð á mótum hins listræna og hins félagslega. Greiningin á reynslu minni á Listasafni Reykjavíkur sýnir að Listasafnið átti auðvelt með að taka til sýningar verk sem ögra venjubundnum ramma listaverka.

Samþykkt: 
  • 7.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17885


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ak ritgerd loka.pdf916.84 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna