is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17945

Titill: 
  • Fyrirtækjakostanir á Íslandi
  • Titill er á ensku Corporate sponsorship in Iceland
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Kostanir eru markaðsafl sem fyrirtæki nota til þess að koma vöru eða þjónustu sinni á framfæri til viðskiptavina. Iðulega notað til þess að kynna vörur eða þjónustu og/eða fyrir fyrirtæki til þess að mynda hugrenningartengsl hjá núverandi eða verðandi viðskiptavinum. Rannsóknarverkefni þetta fjallar um fyrirtækjakostanir á Íslandi og hversu mikið þær eru notaðar á þessu landi. Fjallað er um hugtakið ásamt ávinningum sem kostanir hafa í för með sér og gert grein fyrir kostun sem hluta af kynningarráðunum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna í hversu miklum mæli íslensk fyrirtæki notast við kostanir, ef þau gera það var spurt hvers vegna þau gera það. Þau fyrirtæki sem ekki kosta voru spurð afhverju þau kosta ekki. Einnig var horft til þess hvers konar málefni fyrirtæki væru að kosta, hvort gerðar væru einhvers konar mælingar á ávinningum kostana og hvaða ávinning fyrirtæki væru að leitast eftir.
    Framkvæmd var megindleg rannsókn þar sem tölvupóstföng fyrirtækja var safnað saman með hjálp Creditinfo og Frjálsrar Verslunar og sent út á samtals 1001 fyrirtæki en samtals svöruðu 260 fyrirtæki. Eitt eigindlegt viðtal var framkvæmt við Stefán Gunnarsson framkvæmdarstjóra Vert auglýsingastofu. Stefán hefur sérhæft sig í kostunum og vörumerkjastjórnun en hann hefur komið að mörgum kostunum og er vel að sér í stöðu þeirra á Íslandi.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að rúmlega helmingur fyrirtækja kosta ekki neina viðburði. Íþróttir og mannúðamál voru helstu málefnin sem kostuð eru sem er í takt við það sem þekkist erlendis. Örfá fyrirtæki af þeim sem kosta mæla kostunaraðgerðir sínar. Þau fyrirtæki sem stunda kostanir vilja bæta ímynd en flest fyrirtæki sem ekki kosta gera það ekki vegna þeim finnst það ekki viðeigandi fyrir fyrirtækið.

  • Útdráttur er á ensku

    Corporate sponsorship is a form of marketing force, which companies use to promote their products or services for their customers. Sponsorship is commonly used to promote products or services or even to create brand associations with current or future customers. Main object of this thesis are corporate sponsorship in Iceland, how commonly they are used and its purpose from the corporate standpoint. The term is explained along with the benefits which follow sponorships in general. Sponsorship is defined as a part of communication mix and how it harmonizes in execution.
    The main focus of the research is to explore how much Icelandic companies use sponsorship, why they decided to do so, or why they don‘t. Furthermore, what kind of topics do the companies sponsor; did they measure the gains by sponsoring and what kind of benefits are they looking for. The researcher gathered company‘s mailing list with a help from Creditinfo and Frjáls Verslun. The companies recieved a quantitative questionnier, which was sent to 1001 companies, 260 companies responded. One qualitative interview was performed for this thesis. Resaults showed that little under half of the companies didn‘t sponor a single event. Sport and cause related sponsorships where highly sponsored topics, and a very few of the companies that sponserd any kind of events in Iceland, measured their benefits. Those who do sponsored hoped for image enhancement.

Samþykkt: 
  • 8.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17945


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fyrirtækjakostanir á Íslandi-pdf.pdf996.87 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna