Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17982
Í þessari ritgerð er athyglinni beint að sorgarferli eldra fólks í kjölfar makamissis. Markmið verkefnisins er varpa ljósi á stöðu aldraðra þegar kemur að makamissi og því sorgarferli sem fylgir. Við gerð ritgerðarinnar var aðallega stuðst við erlendar fræðigreinar og rannsóknir. Einnig var litið til íslensks lagaumhverfis.
Niðurstöður leiða í ljós að sorgarferli eldra fólks í kjölfar makamissis getur verið þyngra en annarra og erfiðara ef einstaklingurinn sjálfur á í vanda með að takast á við þær breytingar sem fylgja efri árunum. Ráðgjöf virðist vera árangursrík hvað varðar eldra fólk í sorgarferli en ákveðin tengsl virðast vera á milli þessi að leita aðstoðar sjálfur og meðferðarvirkni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LOKAEINTAK- SaraLindKristjánsdóttir_skemman.pdf | 659.17 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |