Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1810
Greinargerð og handbókin Allir út í náttúruna: hugmyndir að verkefnum fyrir leikskólabörn. Leitast er við að varpa ljósi á áhrif sem nálægð við náttúruna getur haft á heilsu, líðan og þroska barna. Náttúrulegt umhverfi er skoðað sem leik- og námssvæði og fjallað um hvernig haga megi útikennslu leikskólabarna. Í greinargerðinni er stuðst við kenningar ýmissa fræðimanna og jafnframt er vísað í niðurstöður rannsókna sem gefa vísbendingar um áhrif sem nálægð við náttúruna getur haft á börn. Helstu niðurstöður greinargerðarinnar eru þær að ýmislegt bendir til þess að vera barna í náttúrulegu umhverfi hafi góð áhrif á heilsu, líðan og þroska þeirra.
Lykilorð: Verkefnahugmyndir
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð Anna Gina og Júlíana (skemma).pdf | 314.87 kB | Lokaður | Greinargerð | ||
Handbók Anna Gína og Júlíana (skemma).pdf | 2.75 MB | Lokaður | Handbók |