Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18181
Markmið rannsóknarverkefnisins er það að komast að því hvaða áhrif ferðamenn hafa á leigumarkaðinn í Reykjavík. Þar sem rannsóknir virðast vera af skornum skammti á bæði leigumarkaðnum í Reykjavík sem og í ferðaþjónustu hér á landi tekur rannsakandi þann pól í hæðina að setja fram rannsóknarspurninguna;
Hver eru áhrif ferðamanna á leigumarkaðinn í Reykjavík?
Til þess að fá svör við rannsóknarspurningunni voru meðal annars tekin fimm viðtöl við mismunandi aðila á markaði og einkenndust þessir aðilar af störfum sínum, stöðu eða út frá öðrum hagsmunasjónarmiðum. Aðilar þessir voru valdir í þeim tilgangi að deila þekkingu sinni og reynslu frá mismunandi áttum svo úr fékkst marghliða ádeila.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til nokkurra atriða þar sem áhrif ferðamanna á leigumarkaðinn gætir. Hæst ber að nefna þá auknu eftirspurn sem ferðamenn mynda á leiguíbúðir sem leiðir svo til minnkandi framboðs leiguíbúða á almennum markaði. Hærri tekjumöguleikar myndast fyrir íbúðareigendur og fjölgar íbúðum því stöðugt á þessum markaði á kostnað almenna leigumarkaðsins. Þá virðist sem svo að hækkandi verðlag á leigumarkaði megi að hluta rekja til ásóknar ferðamanna á þennan markað. Einnig má nefna áhrif ferðamanna á miðbæinn en rannsóknin gefur til kynna að sífellt erfiðara verður fyrir borgarbúa að leigja þar vegna þeirrar eftirspurnar sem ferðamenn mynda á svæðinu. Aftur á móti má lesa úr niðurstöðum rannsóknarinnar jákvæð áhrif ferðamanna á markaðinn en með þessari auknu eftirspurn myndast forsendur fyrir því að ráðast í byggingarframkvæmdir sem augljóslega koma sér vel fyrir leigumarkaðinn til lengri tíma.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Kristofer_pall_lentz_BS.pdf | 536.66 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |