is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18208

Titill: 
  • „Snemma hafði jeg yndi af óð.“ Herdís og Ólína Andrésdætur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um ævi og skáldskap tvíburasystranna Herdísar og Ólínu Andrésdætra sem fæddust í Flatey árið 1858. Fjögurra ára gamlar voru þær sendar á sitt hvort fósturheimilið og hittust þær nánast ekkert frá þeim tíma þangað til þeim auðnaðist að eiga góðan tíma saman á síðari hluta ævinnar í Reykjavík þar sem þær hittust nánast daglega.
    Í ljós kom að í gegnum tíðina höfðu þær báðar verið að yrkja og saman gáfu þær út ljóðabókina Ljóðmæli árið 1924 og aftur örlítið endurbætta árið 1930. Viðtökur Ljóðmælanna frá árinu 1924 eru skoðaðar og voru þær almennt góðar en þær sýndu einnig hvernig algengt var að líta á skáldkonur á þessum tíma.
    Fyrirmyndir eru afar mikilvægar fyrir konur og mér lék forvitni á að vita hvort þær og aðrar konur fyrr og síðar hefðu einhverjar fyrirmyndir í ljóðasöfnum sem ættu að gefa heildarmynd af íslenskum ljóðskáldum. Skoðaði ég þar af leiðandi ljóðasöfn bæði vísvitandi valin og valin af handahófi. Í ljós kom að jöðrun kvenna er mikil og rata konur illa eða alls ekki í þessi ljóðasöfn.
    Kveðskapur Herdísar og Ólínu gefur mynd af lífi kvenna frá þessum árum þar sem ljóðin þeirra eru mörg hver ævisöguleg. Þær tókust á við sorg og missi með því að yrkja ljóð en af erfiði fengu þær meira en nóg um ævina. Í ritgerðinni eru nokkur valin ljóð systranna skoðuð.

Samþykkt: 
  • 13.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18208


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ingveldur Thorarensen BA Ritgerð.pdf559.17 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna