Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1823
Í ritgerð þessari er fjallað um máltöku og málþroska ein- og tvítyngdra barna. Settar eru fram tvær rannsóknarspurningar, hver er munurinn á máltöku og málþroska ein- og tvítyngdra barna og hvað þurfa kennarar að vera meðvitaðir um í tengslum við málþroska og málörvun? Í ljós kom að lítill sem enginn munur er á máltöku og málþroska ein- og tvítyngdra barna og þann mun sem finna má er ekki hægt að rekja beint til tvítyngis. Kennarar verða að huga að mörgu þegar unnið er með málþroska og málörvun í leikskólum. Þeir þurfa að gera sér grein fyrir mikilvægi málþroska fyrir almennan þroska barna og vera meðvitaðir um leiðir til að örva hann. Mikilvægt er að málörvun gangi sem rauður þráður í gegnum allt leikskólastarf og að börnin fái fjölbreytt tækifæri til að nota tungumálið. Allt umhverfi barna hefur áhrif á málþroska þeirra og kennarar verða að skipuleggja leikskólaumhverfið í samræmi við það.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
306fingin skapar meistarann.pdf | 347.2 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |