is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18281

Titill: 
  • Fyrirmyndir og þátttaka ungs fólks í íþróttum og líkamlegri hreyfingu
  • Titill er á ensku Role models and participation of adolescents in sports and physical activity
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna ástundun og ástæður íþróttaiðkunar hjá ungu fólki á aldrinum 18-20 ára. Jafnframt voru tengsl fyrirmynda og íþróttaiðkunar skoðuð. Rannsóknir af svipuðu sniði hafa verið framkvæmdar hér á landi en flestallar með mun yngra þýði og því nauðsynlegt að kanna þennan hóp ungs fólks betur. Spurningalisti var lagður fyrir þátttakendur (n=253) sem komu úr sex framhaldsskólum á Íslandi. Spurningalistinn innihélt almennar spurningar ásamt sérhæfðari spurningum um almenna hreyfingu, íþróttaþátttöku og ástæðu þess að þátttakendur voru að stunda íþróttir eða höfðu hætt ástundun. Jafnframt var spurt um fyrirmyndir og mikilvægi þeirra kannað í augum þátttakenda. Helstu niðurstöður voru að 26,17% þátttakenda eru ekki að hreyfa sig reglulega (sjaldnar en þrisvar í viku). Jafnframt reyndist marktækur munur á brotffallsaldri drengja og stúlkna, en stúlkurnar hætta að meðaltali fyrr en drengirnir. Stór hluti þátttakenda eða 76,1% eiga sér fyrirmynd og ekki fannst marktækur munur á milli kynjanna. Einnig telur stór hluti þátttakenda mikilvægt að eiga sér fyrirmynd eða 65%. Bæði kyn velja sér svo í miklum meirihluta fyrirmynd af sama kyni, en stúlkur eru þó líklegri til að eiga sér fyrirmynd af gagnstæðu kyni en drengir. Helsta fyrirmynd stúlkna var fjölskyldumeðlimur en drengir kváðu að íþróttastjarna væri þeirra helsta fyrirmynd. Að auki kom í ljós að þeir einstaklingar sem æfa íþróttir eiga sér frekar fyrirmynd en þeir sem hætt hafa íþróttaþátttöku. Íþróttaiðkendur eiga sér jafnframt frekar íþróttastjörnu sem fyrirmynd en þeir sem ekki æfa íþróttir. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til tengsla á milli þess að æfa íþróttir og þess að eiga sér fyrirmynd. Vitneskju þessa ætti því að vera hægt að nýta í baráttunni gegn hreyfingarleysi þjóðarinnar.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this study was to investigate sport participation and it’s relationship to role models within the age group of 18-20 year-olds. Similar research has been done in Iceland, among younger populations mostly. Therefore research involving this age group is needed. Students from six secondary schools in Iceland, 253 in total, participated by answering a questionnaire. The questionnaire contained general questions and more specialized questions about physical activity, reasons for sports participation and the importance of role models. Results showed that 26,17% of the participants do not exercise regularly (less than three times per week). Also a significant difference was found between genders regarding dropout age, where girls on average drop out from sports earlier than boys. Large portion of participants, or 76,1%, have a role model and the difference between genders was nonsignificant. Having a role model was important for 65% of participants. The majority of participants have a role model that is the same gender as they are. However, girls are more likely to have a role model of the opposite sex than boys. The most common role model among girls was a family member, while it was most common for boys to have a sport star as a role model. In addition, the prevalence of having a role model was higher for those participants who participate in sports than for the ones who do not. The results suggest that there is a relationship between sports participation and having a role model. The knowledge gained in this study should thus be helpful in fighting the inactivity of the nation.

Samþykkt: 
  • 15.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18281


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fyrirmyndir og íþróttaþátttaka - PDF.pdf933.37 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna