is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18431

Titill: 
  • Forprófun á mælitækinu Skimun fyrir kvíðatengdum röskunum meðal barna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Kvíðaröskun er einn algengasti sjúkdómur meðal barna í dag. Talið er að allt að 10 % barna þjáist af þeim sjúkdómi. Einkenni geta verið magaverkir, höfuðverkir, einbeitingarskortur, andleg vanlíðan og svefntruflanir. Ómeðhöndlaður getur kvíðinn haft alvarlegar afleiðingar í framtíðinni eins og aukna hættu á geðsjúkdómum, kvíðasjúkdómum og aukinni sjálfsvígshættu.
    Tilgangur þessarar þversniðsrannsóknar var að prófa áreiðanleika og réttmæti íslenskrar þýðingar á mælitækinu Skimun fyrir kvíðatengdum röskunum meðal barna. Mælitækið er spurningalisti ætlað 8-18 ára börnum og metur kvíðaeinkenni. Mælitækið hefur þá sérstöðu að geta skilið á milli mismunandi kvíðaraskana. Spurningarnar í mælitækinu greina hvoru tveggja líkamleg einkenni eins og höfuðverk eða magaverk og sálræn einkenni eins og hræðslu og áhyggjur. Mælitækið ásamt bakgrunnsspurningum var lagt fyrir 70 nemendur í 6. og 7. bekk tveggja grunnskóla í Reykjavík. Svörun var tæp 47 %. Auk áreiðanleika mælitækisins voru metin tengsl kvíða við kyn og fjölskylduaðstæður barnanna. Við úrvinnslu gagna var notuð lýsandi tölfræði, Pearson fylgnipróf og t próf ásamt Cronbach’s Alpha til þess að reikna áreiðanleika mælitækisins. Niðurstöður sýndu að mælitækið er áreiðanlegt og réttmætt í íslenskri þýðingu fyrir 11 - 12 ára börn en reiknað Cronbach’s Alpha gildi er 0,909. Niðurstöður bakgrunnsspurninga sýndu að 85,7 % barnanna áttu góðan vin sem þau treystu og 85,7 % barnanna sögðust ekki vera lögð í einelti af öðrum börnum. Flest börnin stunduðu einhverja íþrótt eða hreyfingu eða 88,6 % úrtaksins. Niðurstöður bentu til þess að allt að 20 % barnanna í úrtakinu geti verið með kvíðaröskun. Tengsl sáust á milli kynja og aðskilnaðarkvíða en marktækt fleiri stúlkur í úrtakinu þjáðust af aðskilnaðarkvíða.
    Eitt af mikilvægum hlutverkum skólahjúkrunarfræðinga er að vera vakandi fyrir kvíðaeinkennum barna og bregðist við þeim með viðeigandi hætti. Mælitækið getur verið mjög nytsamlegt úrræði fyrir skólahjúkrunarfræðinga til að meta kvíðaeinkenni barna sem til þeirra koma.

Samþykkt: 
  • 26.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18431


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
forprofun.pdf404.86 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna