Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1847
Þessi greinargerð er samin í tengslum við lokaverkefni mitt við Kennaraháskóla Íslands. Verkefnið fólst í því að gera bókina Vettvangsferðir um nánasta umhverfi leikskólans að rafrænu verki. Vefsíðan er gerð með það í huga að kennarar og aðrir sem kunna að hafa áhuga á útikennslu leikskólabarna, geti skoðað síðuna og fengið hugmyndir og lært af reynslu annarra. Bókin var samin af starfsfólki leikskólans Tjarnarsels í Reykjanesbæ. Efni hennar er afrakstur þróunarverkefnis sem fór fram í leikskólanum á árunum 1995-2000. Í greinargerðinni vildi ég kafa dýpra ofan í vettvangsferðirnar og því kom upp sú spurning hverjir kostirnir væru við að nota útikennslu í leikskólum og hvernig væri hægt að tengja námsvið leikskólans við útikennslu. Ég kafaði dýpra ofan í vettvangsferðirnar, reyndi að átta mig á hver upplifun barnanna væri í þeim og komst að því að þegar börnin könnuðu á sínum forsendum var könnunin hjá þeim dýpri og skilningur á viðfangsefninu jókst. Þegar börn fá að kanna það sem þau hafa áhuga á en ekki það sem kennarinn setur þeim fyrir, eru meiri líkur að þau vilji frekar fara í vettvangsferðir og upplifunin eftir því. Þau urðu meðvitaðri um hvað þau voru að gera.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
greinargerd_theodora_myrdal_2008.pdf | 761.99 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
Vefsida_lokaverkefni_theodora_myrdal08.fwp | 7.84 MB | Lokaður | Vefur | Vefurinn er hannaður í Microsoft Expression Web og er þetta vefsíðan pökkuð úr því forriti |