is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Kandídatsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18582

Titill: 
  • Algengi líkamsskynjunarröskunar hjá sjúklingum sem leita sálrænnar meðferðar á dagdeild
  • Titill er á ensku Prevalence of Body Dysmorphic Disorder among Patients in a Partial Hospital Program
Útdráttur: 
  • Líkamsskynjunarröskun (LSR) er algeng geðröskun sem hefur yfirleitt tengsl við skerta virkni og sjálfsvígshættu. Þessi rannsókn er sú fyrsta sem metur algengi LSR meðal sjúklinga sem leita sálrænnar meðferðar á dagdeild (partial hospital program), og ber saman sjúklinga sem voru annars vegar með LSR og hins vegar ekki, á lýðfræðilegum og klínískum breytum. Þátttakendur voru 207 sjúklingar með ýmsar geðraskanir . Kyn og fjöldi greininga voru einu lýðfræðilegu og klínísku breyturnar sem marktækur munur fannst á við upphaf meðferðar milli sjúklinga með og án LSR; sjúklingar með LSR voru líklegri til að vera konur og með fleiri greiningar heldur en sjúklingar sem ekki voru með LSR. Algengi LSR í rannsókninni var 7,2%, og LSR-greining reyndist ekki spá fyrir um verri meðferðarárangur á þessari dagdeild. Niðurstöður benda til þess að LSR sé tiltölulega algeng röskun meðal sjúklinga sem leita sálrænnar meðferðar á dagdeild, og að sjúklingar með hafi jafnmikið gagn af meðferð á slíkum dagdeildum og aðrir sjúklingar með geðrænan vanda.

Samþykkt: 
  • 2.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18582


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BDDLokaútgáfaSM.pdf200.52 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna