is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18590

Titill: 
  • Biðin og þráin eftir barninu : reynsla fólks af ófrjósemi og ættleiðingu
  • Titill er á ensku Waiting and longing for a child: People´s experience of infertility and adoption
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur rannsóknar: Ófrjósemi hefur áhrif á milljónir manna um heim allan. Það teljast mannréttindi fyrir barn að alast upp hjá fjölskyldu en á sama tíma eru það ekki talin mannréttindi að verða foreldri. Einungis eitt ættleiðingarfélag er til á Íslandi og hefur það í tímans rás fengið takmörkuð fjárframlög frá hinu opinbera miðað við umfang starfseminnar.
    Tilgangur rannsóknar: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna reynslu fólks af ófrjósemi og ættleiðingu.
    Rannsóknaraðferð: Stuðst var við fyrirbærafræðilega rannsóknaraðferð. Viðtölin voru 13 í heildina, en þátttakendur voru 10 hjón eða einstaklingar, samtals 13 manns, á aldrinum 29-53 ára. Allir þátttakendur áttu það sameiginlegt að hafa upplifað ófrjósemi og ættleiðingu eða vera í ferli að bíða eftir barni til ættleiðingar. Rannsóknarspurningin var: Hver er reynsla fólks af ófrjósemi og ættleiðingu?
    Helstu niðurstöður: Helstu niðurstöður rannsóknar voru að ófrjósemi er átakanlegt og erfitt ástand andlega, líkamlega og fjárhagslega.
    Ófrjósemismeðferðir reyndust þátttakendum mjög erfiðar og jafnvel erfiðari en ættleiðingin og biðin eftir barninu. Depurð var þekkt hjá mörgum þátttakendum bæði vegna ófrjósemi og barnleysis. Forsamþykkisferlið á Íslandi er of langt, of dýrt og oft á tíðum ósanngjarnt. Biðtími eftir barni til ættleiðingar erlendis frá er mjög langur og stóru ættleiðingarlöndin eru að draga úr ættleiðingum úr landi. Flestir þátttakendur treystu sér ekki til að ættleiða íslenskt barn þar sem að þær ættleiðingar eru opnar. Þátttakendum fannst stuðning vanta eftir að heim var komið bæði frá Félagi Íslenskrar ættleiðingar og frá heilbrigðisþjónustunni.
    Ályktun: Rannsóknin sýnir að reynsla af ófrjósemi og ættleiðingu getur tekið mjög á þá sem við á. Mikill kostnaður og margra ára bið einkennir það ferli sem bíður þeirra sem ættleiða barn í dag. Væntanlegir kjörforeldrar þurfa aukinn stuðning og efla þarf þekkingu í samfélaginu varðandi ófrjósemi og ættleiðingar. Styrkja þarf þátt heilbrigðisþjónustunnar varðandi þjónustu við ættleidd börn.
    Lykilhugtök: Ófrjósemi, ættleiðingar, biðtími, kjörforeldrar, kjörbarn.

  • Útdráttur er á ensku

    Background to the study: Infertility affects millions of people worldwide. It is considered to be a human right for a child to grow up with a family but at the same time it is not considered a human right to be a parent. There is only one adoption agency in Iceland and their funding in the past has been quite low.
    Objective: The objective of this study was to explore the participant´s experience of infertility and adoption.
    Method: Phenomenology was chosen as a research approach to the study. The participants were 10 couples or single individuals aged 29 to 53 years old, who had already adopted a child or were waiting to adopt, in all 13 interviews. The main research question was: What is people´s perception of the lived experience of infertility and adoption?
    Findings: The main conclusions were that infertility is difficult to come to terms with and the participants thought it was demanding, physically, mentally and financially. The participants thought that the infertility treatments were difficult, even more difficult than the adoption and the waiting time for the child. Many of the participants experienced sadness because of childlessness and infertility. The process for adoption in Iceland is too long, too expensive and often unreasonable. The waiting time for adopted children from other countries is very long and the largest adoption countries are adopting fewer children out of the country. Most of the participants did not want to adopt a child from Iceland because those adoptions are open and the biological parents can still be involved in the child´s life. The participants found that support was lacking after they returned home with the child, from the adoption agency and from their healthcare.
    Conclusion: It is the researcher´s conclusion that the experience from infertility and adoption can be very difficult for those involved. Adoption in Iceland comes with high expenses and a long wait for the child. Adoptive parents need more support and there is a need for more knowledge in the community about infertility and adoption. The healthcare needs to be more involved regarding services with adopted children.
    Key concepts: Infertility, adoption, waiting time, adoptive parents and adoptees.

Athugasemdir: 
  • Læst til 7.5.2015
Samþykkt: 
  • 2.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18590


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Meistararannsókn Guðnýjar Birnu.pdf900.87 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna