is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18592

Titill: 
  • Mat á gæðum þjónustu heimahjúkrunar á heilsugæslunni á Selfossi út frá gæðavísum Resident Assessment Instrument-Home Care (RAI-HC)
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur. Öldruðum fer fjölgandi ár frá ári og hefur þörfin fyrir þjónustu í heimahúsi aukist í takt við það. Krafan um að heilbrigðisstofnanir veiti gæðaþjónustu og fé sé vel varið er mikil og eykst stöðugt. Með tilkomu gæðavísa Resident assessment insturment – Home Care (RAI-HC) matstækisins opnast möguleikar á að meta gæði þjónustunnar hvernig má auka þau.
    Tilgangur: Að rannsaka hvort hægt væri að hafa áhrif á gæði þjónustu með því að veita starfsfólki fræðslu sem unnin hafði verið fyrir matstækið .
    Aðerð: Rannsóknin var megindleg íhlutunarrannsókn sem fylgdi fyrir- eftir rannsóknarsniði án samanburðarhóps. Gögnin voru byggð á upplýsingum úr RAI-HC gagnagrunninum frá 31skjólstæðingi heimahjúkrunar. Skoðaðar voru vísbendingar um gæði heimahjúkrunar, fyrir og eftir íhlutun. Starfsfólk tók þátt í ákvörðunum varðandi val á gæðavísum.
    Niðurstöður: Meðalaldur þátttakenda í rannsókninni var 79,2 ár, lægsti aldur var 60 ár og hæsti aldur 94 ár, meirihlutinn var konur og bjuggu 51,6% einir. Meðaltími skjólstæðinga í heimahjúkrun var 2 ár og 5 mánuðir. Niðurstöður gáfu vísbendingar um að hægt væri að hafa áhrif á hluta gæðavísanna með fræðslu, eina marktæka niðurstaðan sem birtist var í tilfelli gæðavísisins algengi bylta. Hinir tveir gæðavísarnir sem íhlutun beindist sérstaklega að lækkuðu hlutfallslega þó að munurinn væri ekki marktækur. Sjö af þeim tíu gæðavísum sem íhlutun beindist ekki að sýndu vísbendingar um breytingar til hins betra.
    Ályktanir: Það virtust vera vísbendingar í gögnunum um að fræðsla hefði áhrif á gæði þjónustunnar til hins betra og hjálpaði til við umbótarvinnu. Það var áhugavert að sjá að vísbendingar voru um að fræðslan hefði áhrif á aðra gæðavísa en hún beindist sérstaklega að. Starfsfólk var áhugasamt og vildi taka þátt og hafa áhrif á sína vinnu til hins betra. Niðurstöður gáfu vísbendingar sem gætu nýst fleiri heilsugæslustöðvum við sína umbótavinnu.
    Lykilorð: Aldraðir, RAI-HC, RAI-HC gæðavísar (RAI-HC-QI), íhlutun, MDS-HC

    Abstract
    Background: Every year the elderly polulation is increasing and the need for home care is therefore growing. There is a steadily increasing demand for quality health care services and that the money provided is well spent. The availability of the Resident Assessment Instrument - Home Care (RAI-HC) opens possibilities to identify and evaluate the quality of care provided and how to enhance that care.
    Objectives: The aim of the study was to investigate whether it was possible to have an effect on the quality of the service by training the home nursing personnel based on the guidelines for the assessment instrument.
    Methods: A quantitative intervention study was carried out, both before and after the home nursing personnel received instruction. The data were based on the responses to the RAI-HC of 31 participants who had received home nursing care. The home nursing staff participated in decisions regarding the selection of the quality indicators.
    Results: The average age of participants in the study was 79.2 years, the lowest 60 and the oldest 94.The majority were women and 51.6% were living alone. The average time that the client had been using home care was 2 years and 5 months. The results indicated that it was possible to affect some of the indicators through education, though the only significant result was the reduction in the prevalence of falls. The other two quality indicators that intervention was directed at decreased proportionally, though the difference was not significant. Seven of the ten indicators that intervention was not directed at showed indications of changes for the better.
    Conclusion: There seemed to be an indication in the data that the training had an impact on the quality of service for the better and helped in carrying out improvements. It was interesting that there seemed to be indication that training also had an effect on indicators other than those that were specifically targeted. The staff were interested and wanted to participate and to improve their work. The results provide indications that can be used by public health centers in their efforts to improve their services.
    Keywords: elderly, RAI-HC, RAI-HC Quality indicator (RAI-HC-QI), intervention, MDS-HC

Styrktaraðili: 
  • B-hluti vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
    Velferðarráðuneyti
    Öldrunarráð Íslands
Samþykkt: 
  • 2.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18592


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS Unnur Þormóðsdóttir.PDF3.06 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna