Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18593
Í þessari rannsókn er leitast við að skoða hvort bandarísku teiknimyndirnar um Shrek (2001, 2004, 2007 og 2010) feli í sér andsvar við þeirri óraunhæfu mynd um samfélagið sem gömul, þekkt ævintýri og Disneymyndir síðustu áratuga hafa dregið upp.
Í rannsókninni er annars vegar lögð áhersla á ævintýraformið og birtingarmynd þess í Shrek og hins vegar hina svokölluðu „Disney-formúlu“ og áhrif hennar innan kvikmynda. Ritgerðinni er skipt upp í þrjá meginhluta. Fyrsti kafli felur í sér yfirlit yfir
rannsóknarsöguna og verða þar kynntir til leiks helstu fræðimenn og þróun þjóðsagnafræðirannsókna, allt frá dögum Grimmsbræðra til rannsókna um notkun ævintýraefnis í kvikmyndaheiminum. Í öðrum kafla er söguþráður Shrek-myndanna kynntur og þær mátaðar inn í ævintýraformið, auk þess sem þær verða bornar saman við
Disney-formúluna. Í þriðja kafla er svo athugað hvernig formið er brotið upp í myndunum og hvaða áhrif það hefur á ævintýraheiminn.
Rannsóknin leiddi í ljós að Shrek-myndirnar hafa svarað ákveðinni þörf samfélagsins fyrir nútímalegri gildi og viðhorf í ævintýrateiknimyndum. Jafnframt hafa þær leitt til áframhaldandi þróunar í heimi slíkra mynda og eiga án efa eftir að skilja eftir
sig spor í sögu þeirra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-ritgerð, Þjóðfræði Á.Þ.S..pdf | 289.26 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |