is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18595

Titill: 
  • Fóðrun heilgóma
  • Titill er á ensku Relining and rebasing of complete dentures
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur: Þessi rannsóknarritgerð er lokaverkefni höfundar til B.S. gráðu í tannsmíði við Tannlæknadeild Háskóla Íslands. Tilgangur rannsóknar er að skoða starfshætti íslenskra tannlækna og tannsmiða við fóðranir og hvort þeir standist samanburð við það sem mælt er með samkvæmt nýjustu rannsóknum.
    Einnig er markmið að reyna að komast að því hvernig samvinna tannsmiða og tannlækna við framkvæmd ákveðinna verkferla er háttað á Íslandi.
    Aðferðir: Spurningalisti var sendur til tannlækna sem skráðir eru í Tannlæknafélagi Íslands. Einnig voru valdir af handahófi 20 tannsmiðir sem skráðir eru í Tannsmiðafélag Íslands og lagður var fyrir þá spurningalisti.
    Ákveðið var að notast við megindlega aðferðarfræði og til þess að heimildir yrðu sem áreiðanlegastar var þeim safnað úr ritrýndum tímaritum og fræðabókum.
    Niðurstöður: Helstu niðurstöður könnunar voru þær að meirihluti tannsmiða sögðust fóðra frekar með kaldfjölliðuðu plasti en hitafjölliðuðu. Meirihluti fóðrana eiga að vera gerðar samdægurs. Það að fóðrun eigi að vera gerð samdægurs hefur ekki áhrif á efnisval tannsmiðs. Meirihluti tannlækna segjast gefa tannsmiðum leiðbeiningar um hönnun afturmarka efri heilgóms (e. posterior palatal seal). Meirihluti tannsmiða segjast þó ekki fá leiðbeiningar frá tannlækni um hönnun afturmarka efri heilgóms.
    Ályktun: Tannsmiðir fóðra frekar með kaldfjölliðuðu plasti en hitafjölliðuðu. Ekki er fylgni á milli þess að tannlæknar vilji að fóðrun sé gerð samdægurs og að tannsmiðir noti kaldfjölliðað plast. Ekki er hægt að álykta um það hvort það séu tannlæknar eða tannsmiðir sem hanni afturmörk efri heilgóms (e. posterior palatal seal).

  • Útdráttur er á ensku

    Purpose: The present thesis is the final project towards B.S. Degree in dental technology from University of Iceland. The aim of this study is to see how working procedures of Icelandic dentists and dental technicians are compared to recommended procedures in textbooks and latest peer reviewed scientific- and journal articles.
    Methods: Questionnaire survey was conducted and sent to all dentists registered in the Icelandic Dental Association and 20 Icelandic dental technicians were randomly selected from the Icelandic Dental Technician Association and were interviewed by phone.
    Quantitative research form was used in present study and peer reviewed journals and books were searched to find the most reliable data.
    Results: The main results of the study is that the majority of dental technicians used cold cure resin rather than hot cure resin. Majority of relinings are supposed to be done on the same day as the relining impression is made. It does not affect the dental technicians choise of relining material that the relining is to be done on the same day as the relining impression is made. Majority of dentists gives directions to dental technician about the design of the posterior palatal seal. Majority of dental technicians don´t get directions from the dentists about the design of the posterior palatal seal.
    Conclusion: Dental technicians use cold-cure resin rather than hot-cure resin when relining. No correlation is between the use of cold-cure resin by the dental technicians and dentists wanting the relining procedure taking place on the same day the relining impression was taken. It couldn´t be determined whether the design of the posterior palatal seal is made by the dentist or the dental technician.

Samþykkt: 
  • 2.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18595


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fodrun_heilgoma.pdf1.25 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna