Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1860
Hér á eftir verður fjallað um þróunarverkefnið Bright Start. Gerð verður grein fyrir tilurð þess og hugmyndafræðinni sem liggur að baki. Sagt verður frá Hvolsskóla og hvernig starfsfólk hans og skólastjórnendur kynntust þessari aðferð og innleiddu í skólastarfið.
Einnig verður fjallað um hvað vinnst með þessari aðferð og þá aðallega gagnvart nemendum, hvernig þessi aðferð kemur til móts við ólíkar þarfir og getu nemenda, hvernig hún þroskar nauðsynleg grundvallarhugsunarferli til að nemendur þurfi ekki sértæk úrræði í námi.
Ennfremur verður skoðað hvernig Bright Start tengist framtíðarsýn og gildum Hvolsskóla og hvert gildi þess er við að brúa bilið á milli leik- og grunnskóla.
Lykilorð: Miðlunarnám, vitræn námsskrá.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni_brightstart1.pdf | 280.72 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |