is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18628

Titill: 
  • Veiða og sleppa sem veiðistjórnun á bleikju í Eyjafjarðará
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bleikjustofnum heimsins fer fækkandi og stofnstærðir minnka. Á sama tíma eykst til muna sókn í stangveiðar. Skýrt dæmi er bleikjustofninn í Eyjafjarðará, þar sem að sókn jókst jafnt og þétt til ársins 2001 en eftir það verður algert hrun í stofninum. Hverjar sem ástæður fækkunar bleikju eru, má segja að skynsamlegt sé að bregðast við með veiðistjórn, er miðar að sjálfbærni. Markmið veiða og sleppa (V&S) sem veiðistjórnunaraðferðar er að minnka afföll vegna veiða með því að sleppa veiddum fiski aftur lifandi. Aðferðinni hefur verið beitt til margra ára með ágætis árangri í ýmsum tegundum sportfisks, m.a. laxi og urriða. Litlar heimildir var hinsvegar að finna um að V&S hafi verið notað við veiðistjórnun á bleikju og almennt virðist lítt hugað að veiðistjórnun á bleikju.
    Markmið þessa verkefnis var því að kanna áhrif og möguleika veiða og sleppa til veiðistjórnunar á bleikju í Eyjafjarðará.
    Rannsóknin var þannig framkvæmd að fiskur var fangaður og merktur, sleppt og fylgst með endurheimtum. Til samanburðar er stangveiddur lax og urriði úr nokkum öðrum ám og fiskur fangaður með neti í Eyjafjarðará. Margir stangveiðimenn komu að merkingunum og var þess ekki krafist að þeir beittu sérstökum varúðarráðstöfunum við V&S. Einnig var bleikja fönguð, merkt, geymd í búri í tvo daga og afföll mæld.
    Niðurstöður voru þær að lítill munur var á endurheimtum á bleikju í Eyjafjarðará, hvort heldur hún var fönguð og merkt á stöng eða í net. Ekki var mælanlegur munur á endurheimtum á bleikju í Eyjafjarðará eftir stærð fisks við merkingu, tíma sumars, veiðimanni eða á milli ára. Engin afföll mældust á bleikju fyrstu 48 stundirnar eftir föngun og merkingu.
    Hæstu heimturnar í þessari rannsókn voru á laxi í Fnjóská (19%), því næst á bleikju fangaðri í net (12%) í Eyjafjarðará og svo á bleikju fangaðri á stöng í Eyjafjarðará (10%). Aðrar heimtur voru mun lægri eða á bilinu 3-7%.
    Veiða&sleppa kemur því vel til greina sem veiðistjórnunaraðferð á bleikju í Eyjafjarðará.
    Lykilorð: Bleikja, Veiða&sleppa, Eyjafjarðará, Veiðistjórnun, Stangveiðar

Samþykkt: 
  • 3.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18628


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
veidaogsleppa_bleikja_erlendursteinar.pdf2.48 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna