Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1867
Gagnvirk verkefni í trúarbragðafræði
Eftirfarandi greinargerð er kynning á lokaverkefni mínu til B.Ed – prófs frá Kennara¬háskóla Íslands. Lokaverkefnið sem er kennsluefni er tvíþætt; annars vegar er um vefsíðu að ræða sem gerð er í vefgerðarforritinu FrontPage og inni¬heldur gagn¬virk verkefni og hins vegar Wiki-bók sem inniheldur bæði spurningar og gagn¬virk verkefni. Bæði þessi verkefni fjalla um trúarbrögð sem kennd eru á miðstigi grunnskóla og eru hugsuð sem viðbótar- og stuð¬nings¬efni við náms¬bækur í trúarbragðafræði sem Námsgagnastofnun hefur gefið út fyrir nemendur á mið¬stigi grunnskóla.
Um er að ræða 4 námsbækur sem unnið er út frá; Hindúatrú – Guð í mörgum myndum, Búddhatrú – leiðin til nirvana, Gyðingdómur – sáttmáli þjóðar og Islam – að lúta vilja Guðs. Þrjár fyrsttöldu bækurnar eru eftir Sigurð Inga Ásgeirsson en sú síðasttalda eftir Þorkel Ágúst Óttarsson.
Grunnskólabraut
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| greinargerdin_loka... .pdf | 1,17MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
| vefur.zip | 11,1MB | Opinn | Vefur | GNU ZIP | Skoða/Opna |