Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18677
Markmið verkefnisins er að kanna viðhorf og notkun fólks á útivistarsvæðum í þéttbýli á Íslandi með gæðamatsflokkun Partiks Grahn til hliðsjónar. Beitt var samskonar aðferðum og margir erlendir fræðimenn, til dæmis Patrik Grahn, Ann-Margreth Berggren-Bärring, Catharine Ward Thompson og Jan Gehl hafa notað til að varpa ljósi á þá þætti sem fólk metur mikils í umhverfi sínu. Til þess eru notaðar félagsvísindalegar aðferðir í bland við hefðbundnar greiningaraðferðir í landslagsarkitektúr. Þátttökuathugun var framkvæmd á stóru útivistarsvæði á höfuðborgarsvæðinu. Fossvogsdalur var valinn sem rannsóknarsvæði vegna þeirrar fjölbreytni sem þar er að finna. Hann er fjölfarinn og skilgreindur sem borgargarður í Aðalskipulagi Reykjavíkur. Niðurstöður leiddu í ljós að hægt er að heimfæra aðferðafræði Patriks Grahn á íslenskar aðstæður og sýna fram á gagnsemi þess að nota þátttökuathugun við mat á útivistasvæðum hér á landi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
2014_BS_Steinunn_Gardarsdottir.pdf | 3.94 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |