is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Hólum > Ferðamáladeild > BA verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18744

Titill: 
  • Hver ber ábyrgðina? : umgjörð og framkvæmd öryggismála meðal ferðamanna á eigin vegum í óbyggðum Íslands
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Hver ber ábyrgð á öryggi ferðamanna í óbyggðum Íslands? Náttúra Íslands er helst aðdráttarafl landsins og 36% þeirra erlendu gesta sem hingað koma á ári hverju leggja leið sína um hálendi og óbyggðir. Eins og staðan er í dag virðist sem engin bein stefna sé til á Íslandi sem afmarkar ábyrgðir og skyldur yfirvalda og fyrirtækja gagnvart öryggi ferðamanna. Þegar horft er til aðgerða yfirvalda sem með beinum hætti snúa að öryggismálum í ferðamensku síðustu 20 árin virðast framfarir hafa staðið í stað á meðan fjöldi ferðamanna hefur aldrei verið meiri. Framkvæmd öryggismála virðist nær eingöngu vera í höndum sjálfboðaliða samtaka, á meðan yfirvöld landsins keppast við að auka enn frekar komu ferðamanna til landsins en um leið þvo hendur sínar af allri ábyrgð gagnvart öryggi ferðamannsins.
    Í rannsókn þessari er reynt að kortleggja skildur yfirvalda og einkaaðila gagnvart öryggi ferðamanna. Við gagnaöflun var notuð eigindleg rannsóknaraðferð, fimm hálf opin viðtöl og ein spurningakönnun.
    Lykilorð: Öryggi ferðamanna, ábyrgð, forvarnir, óbyggðir, hálendi Íslands.

Athugasemdir: 
  • Læst til 1.5.2015
Samþykkt: 
  • 11.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18744


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hver ber ábyrgðina IHA Final.pdf2.11 MBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna