Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1875
Þetta verkefni fjallar um námsmat í grunnskólum. Fjallað er um margs konar námsmatsaðferðir og hvernig má nota þær. Námsmatsaðferðirnar sem hér er fjallað um eru: próf, símat, námsmöppur, leiðsagnarmat, hópviðmiðað mat, markviðmiðað mat, jafningjamat, sjálfsmat og lokamat. Einnig koma við sögu ýmis hugtök tengd námsmati.
Kynntar eru niðurstöður rannsóknar á námsmati í grunnskólum þar sem tilgangurinn var að fá upplýsingar um viðhorf, þekkingu og sýn kennara á námsmati, námsmatshugtökum og námsmatsaðferðum. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 92 kennarar, bæði karlar og konur og á öllum aldri. Um var að ræða dæmigerða megindlega rannsókn sem einkenndist af lýsandi tölfræði. Meðal markverðustu niðurstaðna voru að hefðbundin próf eru ennþá notuð mikið í skólum. Einnig vakti það athygli að langflestir sem svöruðu könnuninni höfðu að undanförnu sótt námskeið um námsmat.
Lykilorð: Námsmatsaðferðir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
360- loka).pdf | 426.39 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |