is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18773

Titill: 
  • Söfnun og nýting þorsklifrar á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er virðiskeðja þorsklifrar greind, allt frá því þegar lifrin kemur í land frá bátunum að dreifingu til neytenda. Í virðiskeðjunni er söfnunin á lifur fyrsti hlekkurinn, síðan kemur markaðurinn þar sem fyrirtæki kaupa lifur af útgerðum og bátum til þess að vinna afurðir úr henni, næst eru það vinnslur sem vinna afurðina og loks er dreifing, sem er að mestu útflutningur. Einnig er farið í það hvernig fyrirtæki skapa verðmæti úr lifrinni og hvað hefur áhrif á gæðin á afurðum sem unnin eru úr þorsklifur.
    Þorsklifur hefur verið nýtt í marga áratugi og var í fyrstu helst nýtt til að framleiða þorskalýsi, síðar var byrjað að niðursjóða lifrinna. Nú er þorsklifur helst brædd til lýsisframleiðslu og einnig til framleiðslu á niðursoðinni þorsklifur en það hefur verið mikil aukning hérlendis í framleiðslu á síðustu árum og með nýrri tækni er hægt að hámarka gæðin úr lifrinni að því gefnu að fersk lifur uppfylli ákveðin gæði til að byrja með. Vegna aukinna rannsókna um heilsusamleg áhrif þorsklifrar, þá sérstaklega á lýsi, hefur eftirspurn eftir afurðum úr þorsklifur aukist til muna.
    Það er mikil samkeppni um þorsklifur milli fyrirtækja sem vinna afurðir úr henni en það er að mestu út af aukinni verðmætasköpun og síðan er einnig að koma meira af lifur í land frá útgerðum og bátum sem nær að minnka samkeppnina á móti. Öll fyrirtækin keppast um að fá sem mest af lifur til að vinna úr til að anna eftirspurn eftir afurðum sem þeir framleiða. Tekin voru fyrir tvö fyrirtæki sem eru stærst á sínu sviði hér á Íslandi, en það eru Lýsi hf. sem framleiða lýsi og Akraborg ehf. sem framleiða niðursoðina þorsklifur. Þessi tvö fyrirtæki voru greind og einnig afurðir og aukaafurðir sem þau fá úr vinnslu á þorsklifrinni.
    Lykilorð: Þorsklifur, Ísland, Nýting, Söfnun, Markaður

Athugasemdir: 
  • Læst til 1.5.2016
Samþykkt: 
  • 16.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18773


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni- Söfnun og nýting þorsklifrar á Íslandi, Egill Már Snorrason.pdf1.85 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Forsíða Egill Már Snorrason.pdf962.15 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna