Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18903
Gerð er grein fyrir röskunum á einhverfurófinu og helstu þjálfunarúrræðum sem beitt er hér á landi.Fjallað verður um þá þjónustu sem foreldrar og kennarar geta nýtt sér í uppeldi barna með einhverfu og skyldar raskanir. Skýrt verður frá helstu einkennum einhverfuraskana og farið yfir algengustu flokkana sem tilheyra röskuninni. Sýnt hefur verið fram á að snemmtæk íhlutun á borð við atferlisþjálfun og skipulagða kennslu skiptir miklu máli þegar kemur að þroska og framförum barna með einhverfu. Lykilatriði til að ná árangri í vinnu með börnum með röskun á einhverfurófinu er fræðsla fyrir fjölskyldu og aðra umönnunaraðila. En ekki síður að þau nýti sér þá þjónustu og úrræði sem eru í boði og hæfa hverju barni fyrir sig. Samvinna fagaðila og foreldra er einnig mikilvægur þáttur í bættum árangri hjá börnum með raskanir á einhverfurófinu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Raskanir a einhverfurofi..pdf | 483.71 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |