is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18942

Titill: 
  • Skapandi hópverkefni 2014 : neteinelti
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Samskipti meðal barna og unglinga voru í brennidepli hjá þeim 16 manna nemendahópi sem valdi að vinna að skapandi hópverkefni sem sínu lokaverkefni til B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræðum vorið 2014. Hópurinn skiptist niður í smærri hópa þar sem viðfangsefnið var annars vegar neteinelti og hins vegar samskipti bekkjarfélaga á yngsta stigi grunnskóla. Afraksturinn er fræðslumynd um neteinelti, kennsluefni um samskipti í formi brúðuleikhúss um Von ogTrausta sem og vefsíður með fjölbreyttu efni fyrir foreldra, kennara, börn og unglinga. Hvoru verkefni fylgir skýrsla þar sem lýst er fræðagrunni og hvernig skapað var út frá honum. Skapandi hópverkefni er aðgengilegt á vefnum á http://skrif.hi.is/skapandihopverkefnibed/ Hópurinn sem fjallaði um neteinelti skiptist í fjóra undirhópa, ungmenna-, forráðamanna-, skóla- og fræðslumyndarhóp. Hóparnir unnu náið innbyrðis við hugmyndavinnu og mótun verkefnisins. Vefsíðan neteinelti.is með margvíslegum upplýsingum og frásögnum, fræðslumynd og myndbrotum úr viðtölum, er hugmyndafræðileg sköpun og eign allra í hópnum. Slæm orðræða á netinu hefur verið ofarlega í umræðunni á síðustu árum og kallað hefur verið eftir bættum samskiptareglum í rafrænum samskiptum. Ráðaleysi forráðamanna og annarra uppeldisaðila gagnvart vandanum er áhyggjuefni en þörfin fyrir fræðslu og ráð hefur vaknað gegn slíku ofbeldi á netinu. Vefsíðan og fræðslumyndin á að vera verkfæri fyrir ungmenni, forráðamenn og kennara til að uppræta eineltisvandann.

Athugasemdir: 
  • Greinargerð með vefsíðu
Samþykkt: 
  • 18.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18942


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greinargerð-Neteinelti - lokaverkefni B.pdf737.69 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna