Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18947
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort starfsmenn Norðuráls væru meðvitaðir um mannauðsstefnu og gildi fyrirtækisins. Þá var markmið rannsakanda að komast að því hvort starfsmenn starfi almennt eftir gildum fyrirtækisins, hvernig þeim sé miðlað til starfsmanna og hvort þau séu höfð í heiðri í allri starfsemi innan fyrirtækisins. Tilgangur ritgerðarinnar var að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Eru starfsmenn Norðuráls meðvitaðir um mannauðsstefnu og gildi fyrirtækisins og starfa þeir eftir þeim?
Rannsakandi tók viðtal við Trausta Gylfason öryggisstjóra Norðuráls, en hann sat í framkvæmdastjórn á þeim tíma sem gildavinnan fór fram, ásamt ráðgjafa sem var fenginn til við val þeirra. Lögð var spurningakönnun fyrir rúmlega 10% starfsmanna fyrirtækisins og voru niðurstöður könnunarinnar notaðar til þess að svara rannsóknarspurningunni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd_BSRG_Kristin_Minney.pdf | 1.7 MB | Lokaður til...20.05.2024 | Heildartexti |