Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1894
Í þessari greinargerð er fjallað um gerð tveggja kennslubóka fyrir 9. og 10. bekk grunnskóla. Bækurnar fjalla um trésmíði annaras vegar og málmsmíði hins vegar. Bækurnar eru byggðar á lokamarkmiðum fyrir Hönnun og smíði í Aðalnámskrá grunnskóla 2006, og markmiðum grunndeilda málm- og tréiðna í framhaldsskólunum. Greinargerðin fjallar um tilurð bókanna, fræðilega hlið kennslubókaskrifa og sjónum beint að námskrám skólasmíða, þróun þeirra og hvernig þær hafa endurspeglað viðhorf og gildi í samfélaginu á hverjum tíma. Gerð er grein fyrir útgáfu námsefnis fyrir skólasmíðar á liðnum 100 árum. Greinargerðin fjallar einnig um valgreinar tré- og málmsmíða í grunnskólanum og hvernig þær tengjast bókunum. Að lokum er gerð grein fyrir kenningum um skipulag kennslu og kennslufræðilegum kenningum sem lagðar eru til grundvallar skólasmíðum og bókaskrifunum.
Lykilorð: Námsbækur, greinargerð
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Namsbaekur_verda_til.pdf | 862.93 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
malmsmidi_umbr.pdf | 2.09 MB | Opinn | Kennslubók í málmsmíði | Skoða/Opna | |
tresmidi_umbr.pdf | 2.87 MB | Opinn | Kennslubók í trésmíði | Skoða/Opna |