Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18993
Þetta BA verkefni ber heitið Forysta, fagmennska, fórnfýsi – Alveg frá grunni. Verkefnið er þríþætt og samanstendur af handbók fyrir unglinga í unglingadeildum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, kennsluleiðbeiningum fyrir námskeið umsjónarmanna unglingadeilda og síðan þessi greinargerð.
Í handbók unglinga má finna grunnupplýsingar fyrir unglingana um starfið hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og síðan eru þau námskeið og verkefni sem áætluð eru fyrir unglingana á þeim fjórum árum sem þau starfa í unglingadeildum ásamt ferilskráningu. Í kennsluleiðbeiningunum er farið yfir hvernig námskeiðið skal uppbyggt. Í námskeiðinu er fjallað um efnislega hvað þurfi að hafa í huga við þegar einstaklingar taka að sér að vera umsjónarmenn unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Fræðsla um úti-, ævintýra- og reynslunám er sett fram á námskeiðinu. Greinargerðin er svo fræðileg umfjöllum um efnið, byggð á heimildum og er undirstaða verkefnisins í heild, þar sem farið er í fræðilegan kafla um reynslunám og ígrundun með áherslu á úti- og ævintýranám. Aðalmarkmiðið með verkefninu er að stuðla að samræmingu, í starfi unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forysta fagmennska fórnfýsi.pdf | 793.94 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Námskeiðslýsing fyrir námskeið umsjónarmanna.pdf | 948.96 kB | Lokaður til...07.05.2030 | Fylgiskjöl | ||
Handbók 4 4.pdf | 11.97 MB | Lokaður til...07.05.2030 | Fylgiskjöl |