Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19013
Verkefni þetta fjallar um mikilvægi sköpunar í skólastarfi. Möguleika sköpunar í tengslum við ólíkar kennsluaðferðir með það í huga að mæta mismunandi þörfum nemenda. Skoðað verður hvernig kennsluaðferðirnar leitarnám og leiklist geta ásamt sköpun haft áhrif á nám barna. Velt er fyrir sér hvernig samþættingu námsgreina er háttað í skólum og hvort skapandi nám hafi áhrif á námsgetu nemenda. Að lokum er sett fram heildstætt kennsluferli fyrir samfélagsgreinar með sköpun að leiðarljósi. Kennsluferlið er samið með leiklist í huga fyrir kennslu¬bókina Sögueyjan – 1. hefti. Kennsluferlið felur í sér samþættingu námsgreina og er ætlað að ýta undir áhuga nemenda á námsefninu og koma með hugmyndir að skapandi vinnu í samfélagsgreinum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð_Kristín & Sandra.pdf | 697.93 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |