Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19017
Þetta er 10 eininga lokaverkefni til BA-prófs í þroskaþjálfafræði. Verkefnið er tvíþætt, annars vegar greinargerð sem byggð er á fræðilegum heimildum úr fötlunarfræði og rannsóknum sem gerðar hafa verið á aðgengi fólks með fötlun að aðgengi á netinu. Hins vegar er bæklingur sem heitir Aðgengi fyrir alla á netinu: skref í átt að betra aðgengi fyrir fólk með fötlun að vefsíðum á internetinu. Verkefnið fjallar um aðgengi á internetinu og þá sérstaklega með fatlað fólk í huga þó svo að bætt aðgengi geti komið fleiri hópum til gagns. Bæklingurinn er ætlaður öllum þeim sem vilja stíga skref í átt að góðu aðgengi fyrir alla á vefsíðum sínum. Einnig er bæklingurinn hugsaður til þess að vekja athygli á aðgengismálum á netinu almennt og er umræða um aðgengismál yfirleitt einsleit og er áherslan á líkamlegt aðgengi að byggingum og öðrum stöðum. Efni bæklingsins er byggt á niðurstöðum greinargerðarinnar sem byggð er á fötlunarfræði og rannsóknum á aðgengi. Við vinnu verkefnisins var aðgengi á netinu skoðað og er niðurstaðan sú að oft eru aðgengismál vanhugsuð og jafnvel hunsuð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BAritgerð-MagneaArnardottir.pdf | 399.12 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
bæklingur Sameinað.pdf | 1.71 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |