is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19022

Titill: 
  • Úr vítahring fátæktar : að mennta fólk og samfélag til velferðar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu lokaverkefni verður fjallað um hvernig menntun getur eflt fátækt fólk og fátækt samfélag til velmegunar. Byrjað verður á því að skilgreina hugtakið fátækt samfélag og hvernig samkvæmt því má draga línu á milli fátæktar og velmegunar. Næst verða skoðuð áhrif fátæktar á einstaklinga með tilliti til þroska þeirra í uppvexti, uppeldishlutverk foreldra, heilsufar fjölskyldna og fjölskyldulífið allt. Því næst verður skoðað hvað felst í samfélagslegri tilveru einstaklingsins og hvernig efling samfélagsins styður við velferð hans og öfugt. Hvernig menntun í heilsulæsi getur eflt einstaklinga til sjálfstrausts og upplýsts vals á lífsstíl. Hvernig menntun við erfiðar aðstæður fátæktar eflir einstaklinga og fjölskyldur og samfélagið í heild.
    Markmið þessarar ritgerðar er að sýna fram á hversu mikilvæg menntun er fyrir öll samfélög og þá sérstaklega í eflingu fátæks samfélags í þeim tilgangi að útrýma sárustu fátæktinni fyrir fullt og allt.

Samþykkt: 
  • 19.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19022


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Úr vítahring fátæktar_Að mennta fólk og samfélag til velferðar_word.pdf915.08 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna