Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19024
Ritgerð þessi fjallar um stærðfræðierfiðleika, aðallega þó talnablindu (Dyscalculia) og stærðfræðikvíða. Fjallað er um kennslu í stærðfræði út frá hugmyndum hugsmíðahyggjunnar og hvernig hún nýtist kennurum. Tekið er fyrir hvaða verkfæri eru í boði til að skima eftir hugsanlegum erfiðleikum og hvernig bregðast má við þeim. Rætt er um mikilvægi líkana og er þar sérstaklega rætt um numicon kubba sem dæmi um hjálpartæki í stærðfræði. Fjallað er um stærðfræðimenntun kennara og hvernig hún kemur inn í kennslu yngstu barna í grunnskóla. Skýrt er frá hvernig best sé að haga uppbyggingu námsumhverfis. Að lokum er síðan fjallað um talnaskilning og þá þætti sem verða að vera til staðar til að öðlast færni í stærðfræði. Lagt var upp með tvær spurningar áður en vinnan hófst. Þær eru: Í hverju felast stærðfræðiörðugleikar? og hvaða þætti þarf að skoða til að börn fái sem mest út úr kennslu?.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
prenteintak, loka bed bóksala.pdf | 788.39 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |