Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19052
Verkefni þetta fólst í því að teikna 210m2 staðsteypt
einbýlishús með innbyggðum bílskúr og utanáliggjandi
sólstofu úr timbri. Að innan var farið fram á það að
hafa tvö samliggjandi svefnherbergi sem hægt væri að
sameina í framtíðinni.
Lóðin sem varð fyrir valinu var Desjakór 10,Kópavogi
og hús hannað á þá lóð. Verkefnið inniheldur
aðaluppdrætti, byggingaruppdrætti,burðarþolsuppdrætti,
lagnauppdrætti, vinnumöppu og lokaskýrslu.
Lokaskýrslan inniheldur verklýsingu, tilboðsskrá,
magnskrá og útreikninga fyrir burðarþol, lagnir og
varmatap.
Vinnumappa inniheldur fundargerðir nemanda ásamt verkáætlun.
Markmið verkefnisins er að nemandi sýni fram á
þekkingu og hæfni við tæknilegar úrlausnir í hönnun
út frá þeirri þekkingu sem nemandi hefur öðlast yfir
námið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Skýrsla2014-Hrannar.pdf | 3.97 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Teiknisett2014-Hrannar.pdf | 9.83 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |