Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19066
Uppskriftabókin Eldað með myndum er uppskriftabók með myndrænum leiðbeiningum ætluð fólki með þroskahömlun og/eða einhverfu. Með uppskriftabókinni er markmið okkar að stuðla að auknu sjálfstæði fólks við eldamennsku. Framkvæmd uppskriftanna er sett upp með ljósmyndum og er það gert til þess að auðvelda skilning á leiðbeiningum. Með verkefninu munum við leitast eftir því að svara spurningunni: “Á hvaða hátt geta sjónræn hjálpargögn nýst fólki með þroskahömlun og/eða einhverfu við eldamennsku?”
Uppskriftabókinni fylgir greinargerð sem fjallar um þá hugmyndafræði sem höfð er að leiðarljósi við gerð bókarinnar. Sú hugmyndafræði sem liggur að baki uppskriftabókinni er hugmyndafræðin um sjálfstætt líf, valdefling, sjálfsákvörðunarréttur og sjálfræði. Auk þess er fjallað um sjónræn hjálpargögn og hvernig er hægt að nota þau. Við vinnslu uppskriftabókarinnar fengum við aðstoð einstaklings með einhverfu og þroskahömlun við að prófa framkvæmd uppskriftanna. Greint verður frá framvindu þeirrar vinnu í síðasta kafla meginmálsins ásamt því að farið verður yfir gerð bókarinnar.
Við prófun uppskriftanna komumst við að því að sjónræn hjálpargögn geta komið að góðum notum við eldamennsku. Við teljum uppskriftabókina geta verið ákveðið verkfæri til sjálfstæðara lífs og sjálfræðis.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Eldað með myndum - greinargerð - lokaskil.pdf | 779.11 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Ávaxtasalat.pdf | 767.23 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Forsíða uppskriftabókar.pdf | 167.83 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Hafragrautur með banana.pdf | 520.46 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Kjúklingur með rauðlauk og sætum kartöflum.pdf | 961.06 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Salat með túnfisk.pdf | 904.01 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Banana-boozt.pdf | 428.02 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Forsíður.pdf | 567.64 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Hafragrautur með bláberjum.pdf | 463.08 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Lax með rauðlauki og eplum.pdf | 1.18 MB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Berja-boozt.pdf | 581.12 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Grænmetissalat.pdf | 660.73 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Hafragrautur með rúsínum.pdf | 480.23 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Pastaréttur með skinku og papriku.pdf | 1.15 MB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Efnisyfirlit.pdf | 239.36 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Hafragrautur.pdf | 399.98 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Hakk og spaghetti.pdf | 791 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Salat með fetaosti.pdf | 752.94 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl | ||
Um uppskriftabókina.pdf | 238.69 kB | Lokaður til...01.06.2134 | Fylgiskjöl |