is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19090

Titill: 
  • Hall-hrif í járnseglandi efnum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Hallmælingar voru gerðar á þremur járn-platínu melmissýnunm og fyrirbrigði, sem á ensku nefnist 'Anomalous Hall E ffect' (AHE), skoðað. Nú þegar eru venjuleg Hallhrif notuð í segulsviðsmæla. Með AHE-hrifum er möguleiki á enn næmari mælum. Einnig hafa menn komið með hugmyndir að mörgum tæknilegum notum á AHE í ýmsum búnaði, t.d. vinnsluminni í tölvum. Mælt var Hallviðnám sem fall af segulsviði við nokkur mismunandi hitastig og þannig lagt mat á Hallstuðulinn fyrir AHE og kannað hvernig hann hegðar sér sem fall af hitastigi. Niðurstöður gáfu að AHE-næmnin eytkst með vaxandi hitastigi. Einnig var hægt að meta að hún fer lækkandi með vaxandi platínuhlutfalli þangað til hún nær lággildi einhversstaðar á milli 35-47%.
    Einnig var skoðað hvernig Hall-eðlisviðnám hegðar sér sem fall af eðlisviðnámi til þess að reyna að leggja mat á ríkjandi þátt AHE, en niðurstöðurnar úr þeim mælingum dugðu ekki til þess að fá gagnlegt mat. Kannað var hvernig viðnám sýnanna hegðaði sér sem fall af segulsviði. Ferlar tveggja sýnanna hegðuðu sér eins og búast var við en mælingar á einu sýninu virðast hafa bjagast af óþekktum ástæðum.

Samþykkt: 
  • 20.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19090


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS snið (tex).pdf929.26 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna