Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19128
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er menntun tvítyngdra barna í íslensku skólakerfi, í ljósi skóla án aðgreiningar og fjölmenningarlegrar menntunar. Meginmarkmið ritgerðarinnar var að kanna reynslu, viðhorf og væntingar foreldra tvítyngdra barna varðandi leikskóla- og grunnskólanám barna þeirra. Markmið rannsóknarinnar var einnig að kanna þekkingu foreldranna á réttindum tvítyngda barna. Viðfangsefni rannsóknarinnar var skoðað út frá lögum og aðalnámskrám, skrifum fræðimanna um viðfangsefni rannsóknarinnar og rannsóknum sem gerðar hafa verið á þessu sviði. Rannsókninni var ætlað að svara eftirfarandi spurningu: Er komið til móts við þarfir tvítyngdra barna á leik- og grunnskólaaldri að mati foreldra þeirra?
Viðtöl voru tekin haustið 2013 við 12 pólskra foreldra sem áttu börn í leikskólum eða grunnskólum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að þátttakendur töldu að ekki sé komið nægilega vel til móts við þarfir tvítyngdra barna og foreldra þeirra í leikskólum og grunnskólum sem rannsóknin náði til og að þörf sé fyrir heildarendurskoðun og opinbera stefnumótun varðandi skólanám tvítyngdra barna. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu einnig fram á að nauðsynlegt er að endurskoða kennsluaðferðir með tilliti til þess að skólastarf á að endurspegla fjölmenningarlegt nám með fjölbreyttum kennsluaðferðum og að efla þarf kunnáttu íslenskra kennara til að kenna fjölmenningarlegum bekkjum með skóla án aðgreiningar sem fyrirmynd. Allir þátttakendur sem þátt tóku í rannsókninni þekktu ekki rétt tvítyngdra barna í íslensku skólakerfi þegar börnin hófu nám sitt og var þekking þeirra á réttindum þeirra enn takmörkuð.
Niðurstöður rannsóknarinnar geta verið gagnlegar fyrir fagaðila sem starfa með tvítyngdum börnum í grunnskóla eða leikskóla til að kynnast sjónarmiðum, væntingum og reynslu erlendra foreldra til skólastarfs.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MagdalenaZawodna_Ritgerd_kdHA.pdf | 1.08 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |