Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19148
Lokaverkefni þetta fjallar um heimavinnslu og sölu íslenskra bænda á nautakjöti. Flestir bændur stunda nautakjötsframleiðslu aðeins sem hliðarbúgrein við mjólkurframleiðslu. Ástæða þess er sú að undir venjulegum kringumstæðum stendur nautgriparæktun ein og sér tæplega undir sér. Þótt verð á nautakjöti sé dýrt í samanburði við aðrar íslenskar kjöttegundir skilar aðeins lítill hluti smásöluverðs sér í vasa bænda. Milliliðir eins og sláturhús, kjötvinnslur og verslanir leggja hvert fyrir sig álag á það verð sem bændur fá greitt frá sláturleyfishöfum. Undanfarin ár hafa bændur í auknum mæli farið að selja að hluta til eða að öllu leyti kjöt sitt sjálfir milliliðalaust til neytenda.
Lykilorð : Heimavinnsla, virðisauki, beint frá býli, heimasala, nautakjöt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni Lokaskil í pdf - maí 2014.pdf | 949.86 kB | Lokaður til...14.06.2038 | Heildartexti |