is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19155

Titill: 
  • Fjármálalæsi unglinga á efsta stigi grunnskóla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi skýrsla fjallar um fjármálalæsi íslenskra unglinga á efsta stigi grunnskóla, í tveimur grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Annar skólinn er þátttakandi í tilraunaverkefni Mennta- og menningarmálaráðuneytisins um aukna fjármálafræðslu í grunn- og framhaldsskólum. Hinn skólinn kennir eftir aðalnámskrá grunnskólanna.
    Það hefur orðið vitundarvakning í þjóðfélaginu og fjármálalæsi hefur verið gefið meira vægi og fjármálastofnanir og almenningur eru orðinn meðvituð um mikilvægi þess. Fjármálalæsi kemur við sögu í daglegu lífi einstaklinga og hefur áhrif á lífsgæði þess.
    Skýrslan skiptist í tvo hluta og er fyrri hlutinn fræðileg umfjöllun um fjármálalæsi og niðurstöður eldri rannsókna, bæði innlendra og erlendra. Seinni hlutinn er greining á niðurstöðum megindlegrar rannsóknar, þar sem þær eru túlkaðar og tillögur að úrbótum lagðar fram.
    Settar voru fram eftirfarandi tvær rannsóknarspurningar:
     Þarf að efla kennslu í fjármálalæsi meðal unglinga í efstu stigum grunnskóla?
     Gera nemendur sér grein fyrir því hvað föt og annað sem þau nota daglega kostar?
    Niðurstöðurnar sýndu að fjármálalæsi meðal unglinga á efsta stigi grunnskóla er ekki í viðunandi horfi. Könnun var gerð og meðaleinkunn nemenda í henni var 4,8 hjá Hagaskóla og 4,7 hjá Réttarholtsskóla. Með hækkandi aldri hækkuðu einkunnir og jafnframt jókst þekking þeirra á ýmsum hugtökum tengdum fjármálum. Til að auka vitneskju enn frekar þarf að koma til aukin kennsla í fjármálalæsi strax í grunnskóla og halda áfram með það í framhaldsskóla. Ágætis námsefni er til staðar en það þarf að auka fjölbreytnina og aðlaga það mismunandi aldri barna og ungs fólks. Stjórnvöld þurfa að marka skýra stefnu í þessum málaflokki.
    Lykilorð:
    Fjármálalæsi, viðskipti, unglingar og fjármál.

Samþykkt: 
  • 24.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19155


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fjármálalæsi unglinga á efsta stigi grunnskóla.pdf669.43 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna