is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19156

Titill: 
  • Starfsmannavelta, áhrifaþættir og þróun hennar hjá IKEA á Íslandi á árunum 2007-2013
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni er fjallað um starfsmannaveltu, helstu áhrifaþætti hennar og þær leiðir sem hægt er að fara til að lágmarka slíka veltu. Greinarmunur er gerður á því hvort veltan sé jákvæð, neikvæð, sjálfviljug eða ósjálfviljug ásamt því að farið er yfir kostnað starfsmannaveltu, þróun og hvernig hún fylgir atvinnuástandi og hagsveiflunni á hverjum tíma.
    Verkefnið var unnið í samstarfi við IKEA á Íslandi þar sem ætlunin var að kanna hvernig haldið væri utan um starfsmannamál hjá IKEA og hvaða áhrif efnahagshrunið 2008 hafði á starfsmannaveltu fyrirtækisins.
    Viðtal var tekið við tengilið fyrirtækisins og í framhaldinu var könnun lögð fyrir starfsfólk þar sem spurt var út í áhrifaþætti starfsmannaveltu í tengslum við þau fræði sem fjallað er um.
    Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að vel er haldið utan um starfsmannamál hjá IKEA. Starfsmannastefnan er skýr og rík áhersla er lögð á vellíðan í starfi, jákvæða samskiptahætti og virðingu við hvort annað. Innan veggja IKEA starfar þéttur hópur fólks sem tekist hefur að mynda vináttutengsl sín á milli og byggja þannig upp ánægju í starfi.
    Í lokin er farið yfir helstu áhættuþætti starfsmannaveltu meðal núverandi starfsmanna og tillögur að úrbótum bornar fram.
    Lykilorð: Starfsmannavelta, Starfsánægja, Mannauðsstjórnun, Starfsmannastefna, Starfsmannastjórnun.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 14.4.2050
Samþykkt: 
  • 24.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19156


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Starfsmannavelta, áhrifaþættir og þróun hennar hjá IKEA á Íslandi á árunum 2007-2013.pdf1.05 MBLokaður til...14.04.2050HeildartextiPDF