Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1916
Ritgerðin fjallar um verkefnamiðað nám eða „task” eins og það er kallað á ensku. Í upphafi útskýri ég þá þróun sem átt hefur sér stað í tungumálakennslu og fjalla lítillega um þær aðferðir sem rutt hafa sér til rúms í tímans rás. Ýmsar skilgreiningar eru til um verkefnamiðað nám allt eftir því við hvaða aðstæður orðið er útskýrt. Í ritgerð þessari fjalla ég um hvers vegna og hvenær ætti að velja verkefnamiðaða kennslu, hlutverk kennara og nemenda í verkefnamiðuðu námi og að lokum eru nokkur dæmi um verkefnamiðaðar kennslustundir.
Í ritgerðinni nota ég ýmist hugtakið verkefnamiðað nám eða „task” eftir því hvort hentar betur hverju sinni.
Lykilorð: Verkefnamiðað nám, task.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni Kristjana.pdf | 268.4 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |