Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1921
Ritgerðin fjallar um agakerfi sem kallast á íslensku Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun (PBS) og byggir á niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar sem unnin var á tímabilinu febrúar til apríl 2008. Megintilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvert mat skólastjórnenda er á innleiðingu kerfisins. Þátttakendur rannsóknarinnar voru skólastjórar og aðstoðarskólastjórar þriggja skóla í Reykjavík. Við framkvæmd rannsóknarinnar voru tekin viðtöl við stjórnendur skólanna. Viðtölin voru afrituð og niðurstöður unnar út frá þeim. Flest bendir til að skólarnir þrír séu allir á eitt sáttir við innleiðingu agakerfisins. Svipaðar leiðir eru farnar í innleiðingunni þrátt fyrir að ólíkar leiðir séu farnar hvað varðar umbun í skólunum.
Lykilorð: Agakerfi, heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
341fa.pdf | 252.86 kB | Lokaður | Meginmál | ||
ágrip.pdf | 42.75 kB | Opinn | Ágrip | Skoða/Opna | |
efnisyfirlit.pdf | 59.37 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
heimildaskrá.pdf | 58.52 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna |