is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > ML Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19262

Titill: 
  • Mörkin á milli 4. mgr. 220. gr. og 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið ritgerðarinnar er að greina mörkin á milli 4. mgr. 220. gr. og 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Athugað verður hvort ákvæðin tæmi sök gagnvart hvoru öðru eða hvort beita megi þeim saman. Leiðin að markmiði ritgerðarinnar, og þar með svari við rannsóknarspurningunni, er athugun á því hvers konar háttsemi er heimfærð undir ákvæðin auk þess sem sérstakur samanburður er gerður við sambærileg ákvæði danskra hegningarlaga.
    Í 4. mgr. 220. gr. segir að stofni einstaklingur lífi eða heilsu annarra í augljósan háska í ábataskyni, af gáska eða á annan ófyrirleitinn hátt, skuli hann sæta fangelsisvist í allt að 4 ár.
    211. gr., sbr. 20. gr. felur í sér refsingu fyrir tilraun til manndráps af ásetningi ekki skemmri en 5 ár eða ævilangt nema að sérstakar refsilækkunarástæður séu til staðar.
    Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að munurinn á ákvæðunum liggur einkum í því að 4. mgr. 220. gr. leggur áherslu á hættueiginleika verknaðar frekar en verknaðinn sjálfan eða afleiðingar hans líkt og 211. gr., sbr. 20. gr. Svo virðist sem að mest reyni á mörkin á milli ákvæðanna í skotárásarmálum. Ákvæði 4. mgr. 220. gr. er almennt ekki beitt sé talið að ákvæði 211. gr. sbr. 20. gr. eigi við. Þó má í vissum tilvikum beita ákvæðunum saman. Í langflestum tilvikum þar sem vafi leikur á undir hvort ákvæðið eigi að heimfæra háttsemi eru aðstæður þannig að ekki liggur nægilega ljóst fyrir hvort ásetningur til manndráps hafi verið fyrir hendi. Í þeim tilvikum kemur í hlut dómara að meta út frá fyrirliggjandi sönnunargögnum, sem geta verið takmörkuð vegna sönnunarörðugleika, hvort sannað þyki að ásetningur hafi staðið til manndráps. Loks ber þess að geta að dómaframkvæmd hér á landi svipar mjög til þess sem tíðkast í Danmörku.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this thesis is to examine the difference between clauses found in two articles of the Icelandic Penal Code, No. 19/1940. Article 220 (4) and article 211 c.f. Article 20. The thesis seeks to address this topic by examining current practice in Iceland and Denmark.
    Article 220 (4) prescribes imprisonment of up to 4 years for a person who for the purpose of making profit, through playfulness or in another reckless manner obviously endangers the life or health of others.
    Article 211 c.f. Article 20 prescribes that anyone who attempts to take the life of another person shall be subject to imprisonment for no less than 5 years or for life unless there are some special factors influencing determination of penalty.
    The author concludes that the two clauses mainly differ in terms of emphasis of each article. Article 220 (4) highlights the risk caused by an act rather than the consequences of an act as is the case regarding article 211. c.f. Article 20. It appears to be uncertain which article applies to cases that involve shootings. Article 220 (4) rarely applies when article 211. c.f. Article 20 does but in some cases it is possible to use them together. Most frequently, when there is uncertainty as to which article should be applied, it is due to the lack of evidence that the offender's intention was to take the victim's life. In such cases it is up to the judge to evaluate the evidence in the case and decide whether the intention was to commit murder. Moreover, in many respects Icelandic practice matches that of neighbouring countries. Thus writings by Danish legal scholars are examined as well as judicial decisions by Icelandic and Danish courts.

Samþykkt: 
  • 2.7.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19262


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Mörkin á milli 4. mgr. 220. gr. og 211. gr., sbr. 20. gr. hgl..pdf836.94 kBLokaður til...16.05.2044HeildartextiPDF