Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1926
Markmið rannsóknarinnar var tvíþætt. Hvernig stærðfræðikennsla í getublönduðum bekkjum á miðstigi væri háttað og hvort sýnilegar væru hugmyndafræðilegar áherslur í stærðfræðikennslu. Unnin var eigindleg viðtalsrannsókn meðal þriggja miðstigskennara. Tveir þeirra störfuðu eftir hugmyndum um einstaklingsmiðað nám og samkennslu árganga en einn var með hefðbundna aldurskiptingu í bekk og starfaði eftir uppbyggingarstefnu. Viðtölin voru greind út frá aðalatriðum og tengd við ákveðnar hugmyndafræðilegar áherslur og Aðalnámskrá grunnskóla.
Rannsóknir á kennsluhættum og kennsluaðferðum kennara á miðstigi hafa aukist. Ekki hefur áður verið athugað hvort að hugmyndafræðilegar áherslur skóla hafi áhrif á kennsluhætti kennara í stærðfræðikennslu.
Uppbyggingarstefna er ekki sýnileg í stærðfræðikennslu á miðstigi en það eru hins vegar einkenni einstaklingsmiðaðs náms. Kennsluhættir kennara eru ólíkir eftir hugmyndafræði skóla og aldurskiptingu. Hugmyndafræðilegar áherslur hafa mismikil áhrif á stærðfræðikennslu kennara sem starfa eftir hugmyndum um einstaklingsmiðað nám. Óháð hugmyndafræði, aldurskiptingu í bekki, kennsluháttum og námsfyrirkomulagi er stærðfræðikennsla einhæf.
Ekki er hægt að alhæfa um niðurstöður rannsóknarinnar þar sem um eigindlega rannsókn er að ræða. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um hvernig stærðfræðikennsla í getublönduðum bekkjum á miðstigi er og hvernig hugmyndafræðilegar áherslur eru sýnilegar í stærðfræðikennslu. Merkjanlegar eru breytingar á námsmati hjá einum kennara, sem er í samræmi við hugmyndafræðilegar áherslur einstaklingsmiðaðs náms og Aðalnámskrá. Einnig voru vísbendingar um að samræmd próf í 4. og 7. bekk stýri kennslu og að kennarar telji óréttmætt að birta samanburð á einkunnum í fjölmiðlum. Vísbendingar eru um að niðurstöður samræmdu könnunaprófanna gefi ekki nýjar upplýsingar um námsgetu nemenda og því leiðsagnargildi þeirra réttlætanlegt.
Lykilorð: Samræmd könnunarpróf, hugmyndafræði, uppbyggingarstefna, viðtalsrannsókn, námsmat.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
heildarskjal.pdf | 534.24 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
utdrattur_formali.pdf | 42.42 kB | Opinn | Útdráttur - formáli | Skoða/Opna | |
meginmal.pdf | 393.08 kB | Lokaður | Meginmál | ||
heimildaskra.pdf | 74.8 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
vidaukar.pdf | 146.64 kB | Opinn | Viðaukar | Skoða/Opna |